Glitský

Dansa ský á bláum himni og hreyfa við vitund minni.

Ég loka augunum og sé hina fullkomnu mynd sem ég svo heitt þrái.  Opna þau aftur og til mín brosir lífið yndislegt.

Hef yfir engu að kvarta en geri það þó.


Hin

Sumir geta hvorki elskað né saknað.

Stundum vildi ég vera ein af þeim.


Hörputónar

Þú hljómfagra Harpa sem leikur mér lag um lífið.

Ég heyri tóna þína handan við hafið svo hjarta mitt dansar.

Stundum er gott að sakna.

 

 


Von

Hverfull er hversdagsleikinn.

Hjartað flöktir er þokukennd nótt tekur við af sólríkum degi.  Í húminu leitar sálin skýringar og bíður í sæluríkri minningunni eftir dögun í þeirri von að hún vakni til lífsins á ný.

Varðveitist og haldist að eilífu.

 


Fjaran

Virtist svo fögur í fjarska að ekkert fékk stoppað okkur. 

Yfir girðingar, skurði og gæsaskít létum við vaða hugrakkar með hundinn í fararbroddi.

Náðum takmarki okkar og vel betur því eftir djúpar samræður komumst við að því að ekki er allt sem sýnist og að sjóndeildarhringur hamingjunnar er nákvæmlega þar sem við erum saman staddar.


Sælustund

Með tærnar í mjúkum sandinum hlustaði ég á brimið falla að. 

Undirmeðvitund mín gætti að glaðværum röddum í fjarska á meðan sálin hvíldist í fullkominni ró víðsfjarri tíma, rúmi og lífsins prjáli. 

Ég snéri þó sátt tilbaka eftir stutta stund.

 


"Hufsa"

Vetur að vori og vindur öskrar.

Köld álög breiðast yfir nýútsprungnar vonir svo sumar hörfar.

Kaldar eru tær og fingur, en hjarta mitt brosir

til þín. 


Vorvísa

Undir töfrum vorsins,

leikur lífið á strengi mína.

Snertir líkama og sál svo nóturnar dansa.

Það er gott að vera til.


Draumar

Sit ein og dáist að kvöldroðanum sem ég þrái að deila.

Velti fyrir mér liðnum degi og væntingum þess næsta.

Líð inn í ljúfan angan nætur og leyfi mér að dreyma.

Og er þó . . . sátt við lífið eins og það er.


Ljós

Leiddu mig litla hönd, um lendur þessa lífs.

Í gegnum skarkala dagsins og háð næturinnar.

Leiddu mig í ljósinu sem umvefur þig - því þar er mér hlýtt.

                                                                                               


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband