Fćrsluflokkur: Bloggar
Miđvikudagur, 18. febrúar 2009
Leyndó
Stoltur birtist hann í dyrunum međ andlit alsett stóru brosi og kallađi "mamma".
Um hugann flugu sem snöggvast minningar tengdar fótbolta og prakkarastrikum.
Lyktin hafđi breyst úr súkkulađi-kanil blöndu yfir í adidas-sport og Diesel. Legókubbum og playmo var skipt út fyrir snyrtitösku međ rakvél og rollon. Íţróttagallinn sem fór í ţvott daglega vék fyrir skyrtum, peysum, bolum, buxum, buxum og fleiri buxum.
Hann taldi sig orđinn mann um leiđ og hann sagđi mér leyndarmál sitt.
Í huga móđur er hann ţó enn bara ljúfur lítill drengur.
Bloggar | Breytt 25.7.2009 kl. 22:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 16. febrúar 2009
Huggun
Er sortnađi von tóku tárin ađ streyma.
Ţá birtist hún hljómfögur, fađmađi mig og kyssti.
Kenndi móđur allt ţađ er sú hafđi áđur kennt henni.
Nú, bara helmingi betur.
Bloggar | Breytt 25.7.2009 kl. 22:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 16. febrúar 2009
Nánd
Rökkur tók viđ af degi er litlar hendur köstuđu mjúkum snjónum.
Inn á milli frostrósa glitruđu hnetubrún augu af hamingju augnabliksins. Mótuđust af brosandi vörum sem ţurftu engu viđ ađ bćta.
Skilabođin voru skýr og bárust beint í hjartastađ.
Engin orđ fá ţeim lýst.
Bloggar | Breytt 25.7.2009 kl. 22:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)